Færsluflokkur: Bloggar
Nú þegar Geir hefur verið dæmdur fyrir brot á 17. gr. stjórnarskrárinnar fyrir að halda ekki ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni hefði örugglega, með góðum vilja, verið hægt að dæma hann fyrir brot á 16. gr. stjórnarskrárinnar.
Samkvæmt 16. Gr. stjórnarskrárinnar þá skal bera upp mikilvægar stjórnarráðstafanir fyrir forseta.
16. gr. Forseti lýðveldisins og ráðherrar skipa ríkisráð, og hefur forseti þar forsæti.
Lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir skal bera upp fyrir forseta í ríkisráði.
24.4.2012 | 10:02
Landsdómur telur Geir saklausan
Samkvæmt niðurstöðu Landsdóms þá er bankahrunið ekki Geir Haarde að kenna.
Reyndar finnst Landsdómi að þeir ráðherrafundir sem hann hélt hafi ekki verið um mikilvæg stjórnarmálefni og þess vegna ekki farið að 17. grein stjórnarskrárinnar.
Samkvæmt úrskurði Landsdóms þá hefði Geir algerlega sloppið ef hann hefði haldið ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni.
Ákærði er í máli þessu sakfelldur fyrir að hafa af stórfelldu gáleysi látið farast fyrir að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni eins og fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrárinnar, þrátt fyrir að honum hlaut að vera ljós sá háski, sem vofði yfir bankakerfinu og þar með heill ríkisins, eins og nánar greinir hér að framan, með þeim afleiðingum að ekki var um þau málefni fjallað á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Við ákvörðun viðurlaga verður að líta til þess að þetta brot telst hafa verið framið af stórfelldu gáleysi. Þótt ákærði hafi með þessu ekki eingöngu brotið gegn formreglu, svo sem rakið var hér áður, verður ekki horft fram hjá því að ekki hefði komið til sakfellingar í málinu hefði ákærði gætt að því einu að taka þessi málefni upp innan ríkisstjórnarinnar, eins og honum bar samkvæmt 17. gr. stjórnarskrárinnar.
14.3.2012 | 19:48
Guð er ESB
Mörgum finnst sem ESB sé einskonar trúarbrögð fyrir Samfylkinguna.
Er þá ekki tilvalið fyrir Samfylkinguna að nota Biblíuna og breyta bara orðinu Guð í ESB.
Eftirfarandi dæmi skýra hvað við er átt.
ESB, þú, sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin
að eilífu. Amen.
Í upphafi skapaði ESB himinn og jörð.
Jörðin var þá auð og tóm.
Myrkur grúfði yfir henni.
Þá sagði ESB Verði ljós.
Og það varð ljós.
ESB kallaði ljósið dag
en myrkrið nótt.
Þá skapaði ESB hafið og himininn.
Síðan lét ESB löndin koma í ljós.
Næst lét ESB grös, tré, blóm
og allskonar jurtir vaxa.
Næsta dag skapaði ESB sólina,
tunglið og stjörnurnar.
ESB fannst eitthvað vanta.
Þá skapaði ESB fiskana í sjónum.
ESB fyllti höfin og vötnin
með mörgum tegundum af sjávardýrum.
Því næst gerði ESB fuglana
og fyllti himininn af hverskyns fuglum.
ESB skapaði allar tegundir dýra.
.
.
10.3.2012 | 11:27
Hatur vinstri elítunnar á Davíð Oddssyni
Hatur vinstri elítunnar á Davíð Oddssyni virðist engan endi hafa.
Hatrið er svo mikið að þeir sem leyfa sér að hlæja þegar Davíð segir brandara eru útataðir sem aular og glæpamenn.
Og svo furðulega sem það hljómar þá virðist vinstri elítan vera svo blinduð af hatri að hún trúir meira að segja áróðri íslensku bankaræningjana um að hrunið sé Davíð að kenna.
Er ekki komið nóg af þessari vitleysu?
Maðurinn sem Alþingi ákærði er Geir Hilmar Haarde og ekki Davíð Oddsson.
Það borin von að Davíð verði dæmdur sekur af Landsdómi.
7.3.2012 | 19:36
Landsdómur, vinstri elítan í fýlu.
Fyndið að sjá helstu postula Samfylkingarinnar, Egill Helgasson, Mörð og fleiri engjast um af vanþóknun yfir því að öll vitni skuli staðfesta allt sem Davíð hefur sagt um hrunið.
Ef það er eitt sem aldrei má gera, að mati vinstri elítunnar, þá er það að vera sammála Davíð.
Það er einsog vinstri elítan átti sig ekki á því að Landsdómur er ekki einhver sannleiksnefnd heldur dómstóll þar sem réttað er yfir einstakling.
Það er ekki verið að rétta yfir vitnunum og ekki ætlast til þess að þau séu ákærð fyrir glæpi.
4.3.2012 | 09:47
Hengingarólin til Jóhönnu
Ef svo ólíklega vildi til að Geir yrði dæmdur sekur í einhverju af ákæruliðunum Alþingis, er það þá ekki ábending um að líkurnar á því að hægt sé að hengja núverandi ráðherra séu orðnar meiri en minni?
Er það þá ekki skylda allra alþingismanna að ákæra þá ráðherra sem gerast sekir um samskonar framferði?
15.2.2012 | 07:28
Er Hallgrímur Helgasson barnaníðingur?
Örugglega ekki, en væri ekki betra fyrir hann að fara í lögreglurannsókn og fá dómstólana til þess að skera úr því?
Því miður virðast það vera lenska hjá vinstri elítunni að dylgja um menn og bjóða þeim síðan að afsanna ásakanirnar fyrir lögreglu og dómi.
Ég spyr hefur vinstri elítan misst alla sómatilfinningu?
Ég bið Hallgrím velvirðingar á að hafa notað hans nafn til þess að slá tóninn.
14.2.2012 | 17:25
Rétttrúaðir hommar
Hér áður fyrr þá voru menn hnepptir í fangelsi af því samkynhneigð var talin synd. Núna er uppi rík krafa um að þeir sem telja samkynhneigð vera synd séu fangelsaðir.
Hvar endar þetta?
Á líka að fara að setja þá í fangelsi sem halda því fram að það sé syndsamlegt að drekka áfengi?
Hvað með þá sem finnst það syndsamlegt að hafa kynmök fyrir giftingu?
Furðulegt að vinstri elítan skuli vera á móti öllum rétttrúnaði nema pólitískum.
14.2.2012 | 06:51
Samfylkingin með útsendingu í danska ríkisútvarpinu
Það var einsog Samfylkingin væri með útsendingu í danska ríkisútvarpinu (DR) í gær 13/2.
Hver Samfylkingarpostulinn á fætur öðrum steig á sviðið og jós úr viskubrunni sínum. Þar voru fremstir í flokki Vilhjálmur Þorsteinsson, Egil Helgasson, Hallgrímur Helgasson og Jón Gnarr.
Maður gæti næstum því haldið að RUV hefði verið með í ráðum?
http://www.dr.dk/DR1/horisont/#/31023
12.2.2012 | 15:01
Ísöldin kemur
Samkvæmt ískjarnamælingum á suðurskautinu þá koma hlýindaskeið á jörðinni á rúmlega hundrað þúsund ára fresti.
Einsog grafið hér að neðan sýnir, þá eru hlýindaskeiðin yfirleitt í minna en 10-15 þúsund ár sem er miklu styttra en kuldaskeiðin.
Núverandi hlýindaskeið hefur byrjað fyrir rúmlega 10 þúsund árum, þannig að spurningin sem er á allra vörum er hvenær byrjar aftur að kólna?
Það sem er óvenjulegt núna er að hitastigið hefur að meðaltali síðustu 10 þúsund árin verið stöðugt.
Grafið sýnir líka að þó svo að CO2 (blá lína) aukist mikið síðustu 10 þúsund árin þá er hitastigið, að meðaltali, stöðugt. Þetta er nú ekki alveg í takt við kenninguna um gróðurhúsaáhrifin.
Reyndar væri hægt að halda því fram að þessi aukning á CO2 geri það að verkum að hitastigið sé ekki byrjað að falla.
Táknar þetta þá að mannkynið getur seinkað eða komið í veg fyrir næsta kuldaskeið?
Mér þykir það ólíklegt en það er erfitt að spá og sérstaklega um framtíðina?
Annað sem verður að segjast er að þó svo hitastigið hafi haldist jafnt síðustu 10 þúsund árin, þá er samt pláss fyrir alls konar minni kuldaskeið einsog sagan sannar.
http://en.wikipedia.org/wiki/File:Vostok_420ky_4curves_insolation.jpg