Færsluflokkur: Bloggar
20.3.2015 | 19:32
Sólarrugl
Síðan hvenær hefur það verið hættulegt að horfa til sólar?
Furðulegt að það sé verið að halda því fram að sólmyrkvagleraugun séu til þess að vernda augun.
Sólmyrkvagleraugu eru einsog rafsuðugleraugu notuð til þess að þú sjáir hvað er að gerast í miklu ljósi.
14.2.2015 | 08:24
The only way not to die is in the memory of someone else.
Ég á þetta.
31.8.2014 | 06:19
Hver kostar niðurtöku Hönnu Birnu?
Ef það er rétt að niðurtökur DV séu kostaðar, hver greiddi þá fyrir niðurtökuna á Hönnu Birnu?
Getur verið að sami aðili standi fyrir niðurtöku Hönnu Birnu hjá RUV?
Það var allavega mikið drullumall um Hönnu Birnu í kvöldfréttum RUV í gær.
7.3.2013 | 09:15
Verðtrygging "For Dummies"
Lánveitandi lánar pening til þess að græða pening. Gróðinn er oftast kallaður vextir. Sem dæmi má nefna að ég lána þér 100 krónur og þú borgar mér 200 krónur, þá eru vextirnir 100 krónur og ég græði 100 krónur á því að lána þér 100 krónur.
Reyndar þekkist það líka að lánveitandi lánar pening í öruggt skjól til þess að tryggja að peningurinn rýrni sem minnst. Þetta á til dæmis við um þá lánveitendur sem lána dönskum húseigendum á 1% óverðtryggðum vöxtum þó svo verðbólgan sé 2-3%.
Verðtrygging er trygging fyrir fjármagnseigendur, þar sem lánþeginn tryggir að lánveitandinn græði líka í verðbólgu.
Gallinn við verðtryggingu er auðvitað sá að enginn veit hvað lánið er stórt. 100 króna verðtryggt lán í dag getur orðið 200 krónu lán á morgun. Það er að segja að 100 krónurnar sem þú skuldaðir í gær eru allt í einu orðnar að skuld uppá 200 krónur. Auðvitað hefðu flestir sleppt því að taka slíkt lán ef þeir hefðu vitað að það ætti eftir að tvöfaldast á einum degi.
Verðtryggð lán eru opinn víxill þar sem lánþeginn veit ekki hvað hann borgar fyrir lánið, fyrr en það er að fullu greitt. Þess vegna ættu verðtryggð neytendalán að vera ólögleg.
Í öllum siðuðum löndum verður það að koma skýrt fram í lánasamningum til neytenda hversu mikið þeir eiga að borga fyrir lánið.
18.2.2013 | 16:16
Davíðshatararnir og riddarar níðsins
Einkennilegt að Davíðshatararnir finnist það í lagi að skrifa hvert níðið á fætur öðru um Davíð Oddsson. Ásaka hann um glæpsamlega starfsemi, klíkuskap, líkja honum við Hitler og finnast hann réttdræpur.
Svo þegar Davíð gagnrýnir pólitíska andstæðinga þá slær þetta lið sér á brjóst og þykist vera heilagara en heilög Jóhanna.
Þvílíkur loddaraskapur.
1.2.2013 | 06:41
Brenglaðir semja Stjórnarskrá
Fyrir mér er það brenglað siðferði að finnast það sanngjarnt að skattgreiðendur eigi að borga skuldir óreiðumanna.
Flestir þeir sem sátu í stjórnlagaráði og þeir sem styðja stjórnarskrárfrumvarpið á Alþingi, finnst það sanngjarnt að íslensk alþýða borgi skuldir óreiðumanna.
Er það sanngjarnt að þetta lið semji nýja stjórnarskrá fyrir Ísland?
28.1.2013 | 19:47
Allir fagna nema Spegillinn í fýlu
Áróðursbúlla ESB, Spegillinn á RUV er harmi lostinn yfir sigri íslensku þjóðarinnar og reynir eftir megni að eyðileggja gleðina.
Reyndar fögnuðu ESB liðarnir Steingrímur J, Jóhanna og Eiríkur niðurstöðunni, en öllum hinum í ESB liðinu fannst þetta ansi skrítinn dómur.
Meira að segja huldufólki Sigrúnar Davíðsdóttur fannst þetta ansi skrítinn dómur.
Svo fannst Speglinum þetta auðvitað voða mikið prump af því næstum því engin útlenskur fréttamiðill hafði fjallað um niðurstöðuna.
10.1.2013 | 19:41
RUV lætur reka mann og matreiðir sem æsifrétt
Er það ekki einum of langt gengið þegar RUV er farið að hanna æsifréttir?
Staðan er sú eftir að þið höfðuð samband við okkur, það var fyrsta vitneskjan sem við fengum um þennan atburð eða þennan dóm, er að við höfum rætt við þennan mann og það er ekki óskað eftir hans vinnuframlagi á meðan málið er í skoðun hjá okkur, segir Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
http://www.ruv.is/frett/vikid-ur-starfi-vegna-brots-gegn-barni
9.10.2012 | 10:04
Óháði alkahólistinn
Stefán Ólafsson prófessor reynir eins og rjúpa við staur að sannfæra umhverfi sitt um að hann sé óháður Samfylkingunni, þó svo allir sjái að hann sé Samfylkingarmaður.
Þetta athæfi minnir mig á alkahólista sem reynir að sannfæra sína nánustu um að hann sé ekki háður áfengi, einskonar óháður alkahólisti.
Fyrsta skrefið til þess að losna úr viðjum áfengis er að viðurkenna að maður sé alkahólisti.
Þess vegna bið ég þig kæri Stefán að fara á næstu samkomu Samfylkingarinnar, standa upp og segja hátt og skýrt:
Ég er Samfylkingarmaður.
Þér mun líða miklu betur á eftir.
2.8.2012 | 17:16
Risaklúður Stefáns Ólafssonar
Skrýtið að sjá prófessor við HÍ falsa niðurstöður Hagstofunnar.
Samkvæmt útreikningum Hagstofunnar fór Gini stuðullinn hæst í 29,6 árið 2009 en Stefán heldur því fram að það hafi skeð árið 2008.
Reyndar viðurkennir Stefán risaklúðrið, en heldur því fram að það sé í lagi að falsa niðurstöður Hagstofunnar því gögnin séu 1 árs gömul.
Auðvitað er þetta risaklúður hjá Stefáni því Gini stuðullinn er skilgreindur þannig að ártal á myndum og töflum miðast á við könnunarár, það ár sem lífskjararannsóknin er framkvæmd.
Allir sem hafa með mælingar að gera vita hversu mikilvægt það er að fylgja stöðlum nákvæmlega, sérstaklega ef niðurstöðurnar á að nota til samanburðar.