17.12.2017 | 08:35
Hverja má hata.
Hæstiréttur hefur með dómi um hatursorðræðu tekið undir skilgreiningu vinstri elítunnar og góða fólksins á því hverja má ekki hata. Þetta eru til dæmis samkynhneigðir, flóttamenn og múslímar.
Ég var auðvitað svo vitlaus að halda að allir mættu hata allt og alla.
En nei þú mátt í rauninni ekki hata eitt eða neinn.
Þannig geta táningar sem segjast hata foreldra sína lent í fangelsi. Það þýðir heldur ekkert að segja eftir á að þú hafir ekki meint þetta, skaðinn er skeður.
Með mínum fágætu rannsóknarhæfileikum tókst mér þó að finna nokkrar undantekningar um einstaklinga og hópa sem vinstri elítan og góða fólkið, og þar með Hæstiréttur, hefur ákveðið að sé í lagi að hata.
Listarnir eru ekki tæmandi enda aðeins byggðar á þeim rannsóknum sem mér tókst að ljúka.
Einstaklingar sem má hata og níða opinberlega:
Jesús Kristur Jósefsson
Hitler
Donald John Trump
Davíð Oddsson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Sigmundur Davíð Guðlaugsson
Bjarni Benediktsson
Jón Steinar Gunnlaugsson (Er á listanum að beiðni Hæstaréttar)
Robert Downey
Jólasveininn
Hópar sem má hata og níða opinberlega:
Morðingjar
Barnaníðingar
Dýraníðingar
Kynþáttahatarar
Menn sem lemja konur og börn
Menn sem drepa hvali og seli
Menn sem afneita hlýnun jarðar af mannavöldum
Vondir karlar
Graðir karlar
Sjálfstæðismenn