10.3.2012 | 11:27
Hatur vinstri elítunnar á Davíð Oddssyni
Hatur vinstri elítunnar á Davíð Oddssyni virðist engan endi hafa.
Hatrið er svo mikið að þeir sem leyfa sér að hlæja þegar Davíð segir brandara eru útataðir sem aular og glæpamenn.
Og svo furðulega sem það hljómar þá virðist vinstri elítan vera svo blinduð af hatri að hún trúir meira að segja áróðri íslensku bankaræningjana um að hrunið sé Davíð að kenna.
Er ekki komið nóg af þessari vitleysu?
Maðurinn sem Alþingi ákærði er Geir Hilmar Haarde og ekki Davíð Oddsson.
Það borin von að Davíð verði dæmdur sekur af Landsdómi.
Athugasemdir
Davíð þarf ekki nema að ræskja sig þá fara vinstri menn af límingunum.Kallinn er fæddur leiðtogi og sá eini í manna minnum á íslandi,,ég man ekki hvað það eru mörg ár síðan hann hætti í pólitík en samt er hann hataður af vinstri elítunni ennþá,,,,Hvað ætli menn tali lengi um Jóhonnu Sig, eða Steingrím J eftir að þau hætta ???
Casado (IP-tala skráð) 10.3.2012 kl. 12:00