Færsluflokkur: Bloggar

ESB og Guð

Mörgum finnst sem ESB sé einskonar trúarbrögð fyrir Samfylkinguna.
 
Er þá ekki tilvalið fyrir Samfylkinguna að nota Biblíuna og breyta bara orðinu Guð í ESB.
Eftirfarandi dæmi skýra hvað við er átt.  
 
 
Í upphafi skapaði ESB himinn og jörð.
Jörðin var þá auð og tóm.
Myrkur grúfði yfir henni.
Þá sagði ESB Verði ljós.
Og það varð ljós.

ESB kallaði ljósið dag
en myrkrið nótt.

Þá skapaði ESB hafið og himininn.
Síðan lét ESB löndin koma í ljós.
Næst lét ESB grös, tré, blóm
og allskonar jurtir vaxa.

Næsta dag skapaði ESB sólina,
tunglið og stjörnurnar.

ESB fannst eitthvað vanta.
Þá skapaði ESB fiskana í sjónum.
ESB fyllti höfin og vötnin
með mörgum tegundum af sjávardýrum.

Því næst gerði ESB fuglana
og fyllti himininn af hverskyns fuglum.
ESB skapaði allar tegundir dýra.
.
.

Og FAÐIR VORIÐ (ESB)
 
ESB, þú, sem ert á himnum. 
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, 
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. 
Gef oss í dag vort daglegt brauð. 
Og fyrirgef oss vorar skuldir, 
svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. 
Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. 
Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin 
að eilífu. Amen.


Óráð

Yfir Stjórnlagaráði svífur andi ársins 2007.  

 

Við eigum þetta, við megum þetta.  

 

Með því að beygja, teygja lög og reglur ætlar vinstri elítan að skrifa pólitískan rétttrúnað inn í stjórnarskránna.

 


Icesave the best for Icelandic babies

Allir Íslendingar eru sammála því að þjóðinni ber engin skylda til þess að greiða Icesave.

Spurningin um Icesave III er þess vegna tvíþætt, annarsvegar hvort það sé aumingjaskapur að kaupa sér grið og hinsvegar hvort upphæðin sé ásættanleg?

Er það ásættanlegt fyrir Íslensku þjóðina að kaupa sér grið fyrir 50 miljarða? 

Er það ásættanlegt fyrir Íslensku þjóðina að kaupa sér grið fyrir 500 miljarða eða er það aldrei ásættanlegt að kaupa sér grið?

Brestir og vaxtavextir

Mér segir svo hugur að einkavæðing, VG og Samfylkingarinnar, á íslensku bönkunum sé mesta klúður Íslandsögurnar.

Ég skil ekki hvað íslensku jólasveinarnir eru að hugsa þegar þeir veita hulduliðinu sem eiga 2 af íslensku bönkunum ríkisábyrgð á öllum innistæðum.

Það gleymist ekki hvernig norræna velferðarstjórnin brást heimilum landsins og leyfði bönkunum að sjúga blóðið úr alþýðu landsins.

Hvernig geta VG glaðst yfir því að bankarnir skili margföldum Icesave i hagnað á sama tíma og stór hluti landsmanna þarf að bíða í biðröðum eftir mat?

Sannleikurinn er sagna bestur

Ég skil ekki af hverju Jóhanna og Steingrímur J kjósa að vera óheiðarleg og ljúga einu sinni og aftur að þingi og þjóð?

Þú breytir ekki kosningum eftir á?

Allskonar skrítið fólk heldur því fram að kosningarnar til stjórnlagaþings hafi verið löglegar vegna þess að það hafi ekki verið sýnt frammá að það hafi verið svindlað.

Það hefur heldur ekki verið sannað að það hafi ekki verið svindlað.

Kosningalögin voru þær leikreglur sem samþykktar voru fyrir leikinn til þess að tryggja að ekki yrði svindlað.

Það er auðvitað rugl að ætla sér að breyta reglunum eftirá.   


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband